Eitt kort

Gildir sem aðgangur að 32 veiðisvæði.

 

Um Veiðikortið

Veiðikortið er að hefja sitt sjötta starfsár.  Allt frá fyrsta degi hefur Veiðikortinu verið mjög vel tekið og þessum frábærum viðtökum má þakka það að hægt hefur verið að auka framboðið jafnt og þétt. 


Veiðikortið er mjög hagkvæmur valkostur sem hentar jafnt veiðimönnum sem fjölskyldufólki. Með Veiðikortið í vasanum er hægt að veiða nær ótakmarkað í rúmlega 30  veiðivötnum víðsvegar um landið sem og tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra.

Nú gefst fólki loksins kostur á að stoppa við falleg vötn, í skemmri eða lengri tíma, án þess að þurfa að eyða miklum tíma í að finna út hvert á að fara til að kaupa veiðileyfi, eða hvort það sé fiskur í vatninu og þar fram eftir götum.

Með kortinu fylgir veglegur bæklingur og í honum eru lýsingar á veiðisvæðunum, reglur, kort og myndir.  Í fyrsta sinn núna eru grunnupplýsingar á ensku í bæklingnum.  Allur texti í bæklingi má finna á www.veidikortid.is bæði á íslensku og ensku.

Við viljum hvetja þig til að nota vefinn www.veidikortid.is bæði til skoðanaskipta og til að lesa nýjustu fréttirnar hverju sinni sem tengjast Veiðikortinu. Einnig er gagnlegt og gaman fyrir notendur Veiðikortsins að deila upplýsingum á spjallinu sem er inni á vefnum. Einnig eru veiðisögur og myndir vel þegnar. Netfang Veiðikortsins er veidikortid@veidikortid.is

Samið hefur verið við Stangaveiðifélag Patreksfjarðar um að Sauðlauksdalsvatn kemur nýtt inn til viðbótar við þau vötn sem fyrir eru, en vatnið er eitt skemmtilegasta veiðivatnið á Vestfjörðum.

Við viljum einnig minna á flot Veiðivestin okkar vinsælu sem þegar hafa sannað gildi sitt á íslandi en þau eru til í 7 stærðum hjá okkur og henta því jafnt á börn,unglinga sem og fullorðna 

 

Almennar reglur

Veiðikortið er stílað á einn einstakling og þurfa korthafar að merkja kortið með kennitölu sinni í þar til gerðan reit. Þegar skráning fer fram hjá landeiganda eða veiðiverði ber að sýna Veiðikortið og persónuskilríki eða samkvæmt reglum í bæklingi.  Veiðimenn hvattir til að ganga vel um veiðisvæðin og skilja ekki eftir sig rusl eða önnur ummerki.

Kortið gildir fyrir einn fullorðinn og börn yngri en 14 ára í fylgd með korthafa.  Eiganda kortsins ber að merkja kortið á bakhlið með kennitölu sinni.


Veiðimönnum ber að virða þær reglur sem kynntar eru á upplýsingasíðum vatnanna, en mismunandi reglur geta gilt á milli vatnasvæðanna.

 

 

 

Vatnasvæðin sem í boði verða í Veiðikortinu 2010 eru: 
Kaupa veiðikortið

1 

Arnarvatn á Melrakkasléttu 

2 

Baulárvallavatn 

3 

Haugatjarnir Skriðdal 

4 

Haukadalsvatn í landi Vatns 

5 

Hítarvatn á Mýrum 

6 

Hópið 

 

7 

Hraunhafnarvatn á Melrakkasléttu 

8 

Hraunsfjarðarvatn 

9 

Hraunsfjörður 

10 

Kleifarvatn á Reykjanesi 

11 

Kleifarvatn í Breiðdal 

12 

Kringluvatn 

13 

Langavatn í Borgarfirði 

14 

Ljósavatn 

 

15 

Meðalfellsvatn í Kjós 

16 

Mjóavatn í Breiðdal 

17 

Skriðuvatn í Suðurdal  

18   Skriðuvatn í Suðurdal

19 

Sléttuhlíðarvatn í landi Hrauns 

20 

Svínavatn 

 

21 

Syðridalsvatn 

22 

Sænautavatn 

23 

Urriðavatn 

 

24 

Úlfljótsvatn að vestanverðu. 

25 

Vatnasvæði Selár (Ölvesvatn) 

26 

Vatnsdalsvatn 

27 

Vífilsstaðavatn 

28 

Víkurflóð 

 

29 

Þingvallavatn - þjóðgarður 

30 

Þórisstaðavatn 

31 

Þveit í landi Stórulág. 

32 

Æðarvatn á Melrakkasléttu

 

 

 

 

Esjugrund ehf • esjugrund@esjugrund.is • Sími 565-3322 • Visa / MasterCard / Póstkröfur
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is