Björgunarveiðivesti 


    


ATH
veiðivestin frá Winning Edge eru með klofólum 

og því EKKI hætta á að vestið fljóti upp á haus notandans eins og á vestum þar sem klofólarnar vantar.   


Henta alveg frábærlega við íslenskar aðstæður jafnt í
lygnum vötnum sem og straumhörðum ám.

11 vasar eru á Winning Edge vestinu 10 að framan 1 að
aftan einnig er lykkja fyrir háf, naglaklippur sem
og motta fyrir þínar uppáhalds flugur.

Níðsterkt denier 200 nylonefni sem er í ytrabirgði vestsins.

Frábær hlýr mjúkur og einstaklega þægilegur hálskragi
er á vestinu, honum má einnig renna af ef veiðimanninum
er orðið of heitt. Hann er úr neoprene og fleece efni.

Lungamjúkt PVC flotefni er í flothólfum að framan.
Flothólf að aftan eru hólfuð niður í nokkur hólf til
þess að auka enn frekar á lipurð og þægindi þess sem vestið notar.

Lokaðar hliðar eru á vestinu og rennilás að framan
einnig eru nokkrar Nylonólar á vestinu til enn frekara öryggis fyrir notandann.

Vestið WINNING EDGE er með vottun nr 160.064/4456/0
frá amerísku strandgæslunni sem er ein sú virtasta í heimi.

Og að sjálfsögðu eru klofólar til varnar því að vestið fljóti upp á veiðimanninum
á Winning Edge flotveiðivestunum


Til í 7 stærðum og henta því einnig á börn

Small • Medium • Large
XL •  2XL • 3XL • 4XL

VERÐ:

12.090.- kr án vsk
15.173.- kr m/vsk       Panta
hér

Söluaðilar :

Ellingsen

Sjóbúðin Akureyri

Veiðisport Selfossi


Gas fyllt

Björgunarvesti

og
jafnframt vöðlubelti



Frábær kostur fyrir þá sem eiga venjuleg veiðivesti
eða veiðijakka
en vilja samt njóta öryggisins sem björgunarvesti getur veitt þeim.

-Flott mittistaska með uppblásanlegu björgunarvesti fyrir veiðimanninn.
kemur einungis í einum lit blá/grá svart belti
-Vestið er jafnframt vöðlubelti 2" á breidd (5 cm).


Notkun vestisins:

Kippt er í handfang á töskunni þá blæs vestið upp og er það blásið upp með gashylki (nota B408 gashylki) eða blásið í gegn um slöngu.
Síðan er það sett yfir höfuð notandans.


Einn vasi er á mittistöskunni fyrir ýmsa smáhluti ss lykla vasahníf eða aðra smáhluti.
Einnig er á vestinu mælir fyrir gasið sem gefur til kinna ef skipta þarf um hylki
á vestinu eru líka endurskinsmerki & neyðarflauta og er vestið sjálft skærgult þegar búið er að blása það upp og sést því langt að.

Vestin eru að sjálfsögðu með vottun frá Amerkísku strandgæslunni type III.

Ein stærð sem hentar fyrir alla.

VERÐ:

16.056.- kr án vsk
20.150.- kr m/vsk      Panta hér

 

 

 

 

 

 



Esjugrund ehf • esjugrund@esjugrund.is • Sími 565-3322 • Visa / MasterCard / Póstkröfur
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is